Fréttir
Sumarnámskeið fyrir börn og styrkir úr safnasjóði
Borgarsögusafn heldur tvö námskeið fyrir börn í sumar, annað verður í Viðey í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og hitt á Árbæjarsafni í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands. Borgarsögusafni hefur verið úthlutað alls sex styrkjum í aðalúthlutun safnasjóðs 2021 að heildarupphæð 7.050.000 kr.
NánarDagskrá Borgarsögusafns í vetrarfríinu 20.-23. feb. 2021
Það verður fjölbreytt dagskrá í boði á Borgarsögusafni í vetrarfríi grunnskólanna í Reykjavík og að venju verður ókeypis aðgangur fyrir fullorðna í fylgd barna.
NánarHreint og öruggt - Við fylgjum sóttvarnareglum
Borgarsögusafn tekur þátt í HREINT OG ÖRUGGT átaki Ferðamálastofu.
NánarAðventan á Borgarsögusafni
Árbæjarsafn í jólabúning en engin skipulögð jóladagskrá verður þar í ár
NánarBorgarsögusafn opnar á ný
Borgarsögusafn og hinir fimm frábæru staðir þess hafa allir opnað á ný.
NánarFjölskyldur njóti útiveru á Árbæjarsafni og í Viðey í haustfríinu
Borgarsögusafn hvetur fjölskyldur til að njóta útiveru í fallegu umhverfi Árbæjarsafns og Viðeyjar í haustfríinu og virða fyrir sér safnhúsin, listaverkin og náttúruna.
NánarBorgarsögusafn fyrirmyndarstofnun 2020
Borgarsögusafn lenti í 3. sæti þriðja árið í röð yfir fyrirmyndarstofnanir með starfsmenn færri en 50.
NánarFriðarsúlan tendruð 9. okt. kl. 21.
Friðarsúlan í Viðey, listaverk Yoko Ono, verður tendruð í 14. sinn á fæðingardegi tónlistarmannsins Johns Lennon föstudaginn 9. október klukkan 21. Lennon hefði orðið áttræður á árinu.
NánarSöfnum borgarinnar lokað vegna samkomubanns
Söfnum Reykjavíkurborgar verður lokað frá og með deginum í dag.
NánarViðbrögð Borgarsögusafns við hertum sóttvarnareglum 31. júlí 2020
Opnunartími Borgarsögusafns og allra fimm staða þess helst óbreyttur en leiðsagnir falla niður á meðan 2 metra reglan er í gildi. Tryggður verður aðgangur að handsótthreinsi fyrir gesti og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa. Þá verður þrif aukin og yfirborð sótthreinsað eins oft og unnt er og gestir og starfsfólk minnt á einstaklingsbundnar sóttvarnir með merkingum og skiltum. Tryggt verður að ekki fleiri en 100 manns komi saman í sama rými.
NánarÓðinn siglir á ný eftir 15 ár í höfn
Gærdagurinn 11. maí 2020 var merkur dagur í sögu sjósóknar og sjóminja á Íslandi, en um hádegisbil voru aðalvélar hins sögufræga varðskips Óðins gangsettar á ný, nærri Engey, eftir um 15 ára hvíld.
NánarGrunnsýning Sjóminjasafnsins tilnefnd til íslensku safnaverðlaunanna 2020
FISKUR & FÓLK - SJÓSÓKN Í 150 ÁR, ný grunnsýning Sjóminjasafns Bogarsögusafns Reykjavíkur og aðkoma tveggja hollvinasamtaka, Óðins og Magna hefur verið tilnefnd til íslensku safnaverðlaunanna 2020.
NánarMYNDIR ÁRSINS 2019 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
MYNIDR ÁRSINS er árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur mánudaginn 11. maí.
NánarBorgarsögusafn opnar á ný 4. maí
4. maí mun Borgarsögusafn Reykjavíkur opna að nýju sýningar sínar fyrir gesti og er það mikið gleðiefni. Tímann sem lokað hefur verið hefur starfsfólk nýtt vel til undirbúnings og annarra mikilvægra innri starfa á safninu.
NánarFornar rætur Árbæjar frestast fram í ágúst vegna COVID-19
Ákveðið hefur verið að fresta vettvangsnámskeiði HÍ og fornleifarannsókninni Fornar rætur Árbæjar fram á sumarið vegna Covid-19 en uppgröftur hefur farið fram í maí síðustu árin á bæjarstæði Árbæjar, Árbæjarsafni.
NánarBorgarsögusafn lokað á meðan samkomubanni stendur
Árbæjarsafn, Landnámssýningin, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Sjóminjasafnið í Reykjavík verða lokuð frá og með 24. mars 2020.
NánarSÖFN BORGARINNAR OPIN þrátt fyrir samkomubann vegna kórónuveirunnar
Söfn Reykjavíkurborgar, Borgarsögusafn, Borgarbókasafn og Listasafn Reykjavíkur halda óbreyttum opnunartíma þrátt fyrir samkomubann en boðuðum viðburðum verður aflýst eða frestað frá og með mánudeginum 16. mars, á meðan samkomubannið er í gildi.
NánarLeikfangasýningu Árbæjarsafns lokað tímabundið!
Ákveðið hefur verið að loka leikfangasýningu Árbæjarsafns tímabundið. Þessi varúðarráðstöfun er tekin í samráði við borgaryfirvöld og er ætlað að draga úr útbreiðslu COVID-19 vírussins. Aðrar ráðstafanir á safninu beinast að auknum handþvotti og almennum þrifum þá einkum hlutum sem margir snerta. Sótthreinsunarspritt er aðgengilegt í miðasölu safnsins og á baðherbergjum.
NánarDagskrá Borgarsögusafns í vetrarfríinu
28. feb. -2. mars 2020. Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
NánarSafnanótt 2020 á Borgarsögusafni
Föstudaginn 7. febrúar allir staðir opnir kl. 18-23. Nema Óðinn verður opinn frá kl. 19-22.
NánarVarðskipið Óðinn 60 ára
Nú eru liðin 60 ár frá því að varðskipið Óðinn kom til Íslands. Að því tilefni buðu Hollvinasamtök Óðins velunnurum skipsins til afmælisfagnaðar um borð, sunnudaginn 26. janúar 2020.
NánarLandnámssýningin lokuð 17.-31. janúar 2020
Landnámssýningin verður lokuð 17.-31. janúar 2020 vegna framkvæmda.
NánarSiglingar til Viðeyjar liggja niðri um óákveðinn tíma
Aðgengi að Viðey hefur verið lokað í óákveðinn tíma þar sem aðalbryggjan slitnaði í óveðrinu sem gekk yfir landið í miðjum desember 2019.
NánarÁrbæjarsafn lokað 10. des vegna óveðurs!
Árbæjarsafn verður lokað á morgun 10. des þar sem von er á norðanstormi. Landnámssýningin, Ljósmyndasafnið og Sjóminjasafnið verða að óbreyttu opin til kl. 14.
NánarBráðum koma blessuð jólin │Jóladagskrá Árbæjarsafns
Bráðum koma blessuð jólin er yfirskrift jóladagskrár sem boðið verður upp á í Árbæjarsafni sunnudagana 15. og 22. des kl. 13-16. Jóladagskráin er ómissandi hluti aðventunnar í borginni enda leitun að stað sem er eins notalegt og skemmtilegt að heimsækja á þessum tíma árs.
NánarOpnunartímar yfir jól og áramót 2019-2020
Borgarsögusafn Reykjavíkur – eitt safn á fimm frábærum stöðum
NánarLjósmyndarýni á Ljósmyndahátíð Íslands 2018
Ljósmyndarýni verður haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur dagana 19.- 20. janúar 2018.
NánarDagskrá Borgarsögusafns í haustfríinu 24.-28. okt. 2019
Ókeypis aðgangur fyrir fullorðna í fylgd með börnum!
NánarTÁLGNÁMSKEIÐ ÁRBÆJARSAFNS
Árbæjarsafn býður upp á skemmtilegt örnámskeið í tálgun í júlí.
NánarOpnunartími um páskana
Sjóminjasafnið í Reykjavík og Landnámssýningin í Aðalstræti verða opin alla páskana. Árbæjarsafn verður opið en lokað föstudaginn langa og páskadag. Lokað verður á Ljósmyndasafninu.
NánarBarnamenningarhátíð 9. - 14. apríl 2019
Í tilefni af Barnamenningarhátíð verður ókeypis aðgangur fyrir fullorðna í fylgd með börnum á öll söfn og sýningar Borgarsögusafns Reykjavíkur, dagana 9. - 14. apríl.
NánarVetrarfrísdagskrá 23.- 26. febrúar 2019
Ókeypis aðgangur fyrir fullorðna í fylgd með börnum!
NánarSafnanótt 2019 | Borgarsögusafn
Borgarsögusafn tekur þátt í safnanótt föstudagskvöldið 8. febrúar 2019. Að venju verður boðið upp á spennandi dagskrá á Árbæjarsafni, Landnámssýningunni, Ljósmyndasafninu og Sjóminjasafninu. Ókeypis aðgangur er á alla viðburði.
NánarHúsverndarstofa opnar 6. feb. 2019
Húsverndarstofan verður opnuð á ný í Árbæjarsafni eftir vetrarfrí miðvikudaginn 6. febrúar 2019.
NánarÓðinn tekinn í slipp
Í dag mánudag 15. október var varðskipið Óðinn tekið í slipp í Reykjavíkurhöfn. Óðinn, sem er einn stærsti og merkilegasti safngripur Íslands, er varðveittur á Grandanum sem hluti af Sjóminjasafninu í Reykjavík, nánar tiltekið við Óðinsbryggju í Vesturbugt.
NánarAðalstræti 10 heyrir undir Borgarsögusafn Reykjavíkur
Þann 5. maí 2018 opnaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hið sögufræga hús að Aðalstræti 10 sem safn og sýningahús á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur.
NánarHúsverndarstofa lokuð í júlí 2018
Húsverndarstofa á Árbæjarsafni verður lokuð nú í júlí vegna sumarleyfa starfsmanna.
NánarEnduropnun Sjóminjasafnsins 9.-10. júní
Sjóminjasafnið í Reykjavík var enduropnað helgina 9.-10. júní með tveimur glænýjum sýningum: Grunnsýningunni Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár og sýningunni Melckmeyt 1659 sem fjallar um fornleifarannsókn neðansjávar á hollensku kaupskipi sem fórst við Flatey á 17. öld.
NánarAðalstræti 10: Elsta hús miðborgarinnar opnað almenningi sem safnhús
Þann 5. maí 2018 opnaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hið sögufræga hús að Aðalstræti 10 sem safn og sýningahús á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur.
NánarBarnamenningardagskrá Borgarsögusafns 17.-22. apríl 2018
Borgarsögusafn tekur þátt í Barnamenningarhátíð 2018 með skemmtilegri dagskrá í Árbæjarsafni, Landnámssýningunni og Ljósmyndasafninu.
NánarHANDVERKSNÁMSKEIÐ Heimilisiðnaðarfélagið og Árbæjarsafn
Það jafnast fátt á við að að skapa fallega hluti með eigin höndum í góðum félagsskap og notalegu umhverfi.
NánarTÁLGNÁMSKEIÐ ÁRBÆJARSAFNS
Árbæjarsafn býður upp á skemmtilegt örnámskeið í tálgun í júlí.
NánarSÍGILDAR LJÓSMYNDUNARAÐFERÐIR
Langar þig að læra að búa til myndavél úr pappakassa og taka ljósmyndir? Kynnast því að vinna í myrkraherbergi og framkalla myndirnar?
NánarVetrarfrísdagskrá Borgarsögusafns 2018
Fjölbreytt dagskrá dagana 15.-18. febrúar í Árbæjarsafni, Landnámssýningunni og Ljósmyndasafninu. Ókeypis aðgangur fyrir börn og fullorðna í þeirra fylgd.
NánarVinningshafi ljósmyndarýni Ljósmyndasafns Reykjavíkur 2018
Það er með mikilli ánægju sem við tilkynnum að mastersneminn Þorsteinn Cameron var hlutskarpastur þátttakenda í ljósmyndarýni 2018 sem Ljósmyndasafn Reykjavíkur stóð fyrir 19.-20. janúar s.l. og var hluti af dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018. Í verðlaun hlaut Þorsteinn styrk úr Minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar ljósmyndara (1862-1937) að upphæð 500.000 kr.
NánarBreytingar á Sjóminjasafninu í Reykjavík
Sjóminjasafnið lokað frá 24. des og fram í mars mánuð 2018
NánarHúsverndarstofa lokuð í desember og janúar
Húsverndarstofan verður lokuð í desember 2017 og janúar 2018. Á meðan lokun stendur geta gestir sent sérfræðingum Húsverndarstofu erindi sitt í tölvupósti á netföngin postur@minjastofnun.is eða minjavarsla@reykjavik.is. Húsverndarstofa opnar á ný miðvikudaginn 7. febrúar 2018 og er opið á milli kl. 15-17.
NánarBreytingar á Sjóminjasafninu
Safnið er lokað fram á vor 2018 vegna framkvæmda við nýjar sýningar.
NánarLjósmyndarýni á Ljósmyndahátíð Íslands 2018
Ljósmyndarýni verður haldin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur dagana 19.- 20. janúar 2018.
NánarVETRARFRÍSDAGSKRÁ BORGARSÖGUSAFNS 2017
19.-23. október 2017 Borgarsögusafn verður með fjölbreytta dagskrá í vetrarfríi grunnskóla Reykjavíkur 19. -23. október og er aðgangur að henni að venju ókeypis fyrir börn og fullorðna í þeirra fylgd.
NánarTendrun Friðarsúlunnar 9. október
Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 11. sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi Johns Lennons mánudaginn 9. október klukkan 21:00 og verður kveikt á henni til 8. desember sem er dánardagur hans. Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Þá verða á fríar strætóferðir í kringum tendrunina.
NánarHeimsókn til systurborgarinnar Hull í Bretlandi.
Dagana 31. ágúst – 3. september hélt hópur frá Íslandi til Kingston upon Hull, sem er einmitt systurborg Reykjavíkur. Þessi hópur taldi hátt í 40 manns og voru flestir félagar í Öldungaráði Landhelgisgæslunnar og Hollvinasamtökum Óðins.
NánarDagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt laugardaginn 19. ágúst.
Borgarsögusafn opnar dyr sínar á Menningarnótt 19. ágúst og býður öllum gestum ókeypis aðgang í tilefni dagsins. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í þremur af fimm stöðum safnsins: Landnámssýningunni, Sjóminjasafninu í Reykjavík og Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
NánarSafnadagurinn 18. maí 2017
Borgarsögusafn tekur þátt í Safnadeginum 18. maí 2017 með alls fimm viðburðum og er ókeypis aðgangur að þeim öllum.
NánarHúsverndarstofa um páskana
HÚSVERNDARSTOFA á Árbæjarsafni er lokuð þann 12. apríl vegna páskafrís en opið verður næsta miðvikudag 26. apríl kl. 15-17 fyrir áhugasama um viðhald og endurgerð eldri húsa. Á meðan lokun stendur geta gestir sent sérfræðingum Húsverndarstofu erindi sitt í tölvupósti á netföngin postur@minjastofnun.is eða minjavarsla@reykjavik.is.
NánarFornar rætur Árbæjar liggja enn dýpra en áður var talið
Um nýjar fornleifarannsóknir í Árbæ
NánarHúsverndarstofa á Árbæjarsafni verður lokuð í júlí
Fréttatilkynning Húsverndarstofa á Árbæjarsafni verður lokuð nú í júlí vegna sumarleyfa starfsmanna. Á meðan lokun stendur geta gestir sent sérfræðingum Húsverndarstofu erindi sitt í tölvupósti á netföngin postur@minjastofnun.is eða minjavarsla@reykjavik.is. Húsverndarstofa opnar á ný miðvikudaginn 10. ágúst og verður opið alla miðvikudaga á milli kl. 15 og 17 fram til 30. nóvember 2016. Gleðilegt sumar!
NánarAð eiga sig sjálfur, stund og stund – sögulegur garður og fegrun torgs á Árbæjarsafni.
NánarAlþjóðlegi safnadagurinn 18. maí
Borgarsögusafn verður með fjölbreytta dagskrá þann 18. maí í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum og að sjálfsögðu verður frítt inn á alla okkar sýningarstaði. Sjá nánari upplýsingar um dagskránna hér fyrir neðan.
Nánar110 ár liðin frá því þilskipið Ingvar fórst við Viðey.
Illugi Jökulsson rithöfundur flytur hádegiserindi þann 7. apríl í Sjóminjasafninu í Reykjavík kl. 12:10 í tilefni af því að þann dag eru 110 ár liðin frá því að þilskipið Ingvar fórst fyrir utan Viðey með 20 manns innanborðs. Sjóminjasafnið í Reykjavík stendur fyrir viðburðinum.
NánarHandritaspjall kl.14 alla sunnudaga í apríl.
Næstu fjóra sunnudaga munu fræðimenn af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum spjalla um handrit á sýningunni Landnámssögur – arfur í orðum sem staðsett er í Aðalstræti 16 þar sem Landnámssýningin er einnig til húsa.
NánarHúsverndarstofa í páskafríi
HÚSVERNDARSTOFA á Árbæjarsafni er lokuð þann 23. mars vegna páskafrís en opið verður næsta miðvikudag 30. mars kl. 15-17 fyrir áhugasama um viðhald og endurgerð eldri húsa.
NánarLjósmyndahátíð Íslands 14.- 17. janúar 2016
Dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2016 samanstendur af fjölbreyttri dagskrá; sýningum, ljósmyndarýni, fyrirlestrum og kynningu á ljósmyndabókum.
NánarTendrun friðarsúlunnar á afmælisdegi Yoko Ono 18. febrúar.
Friðarsúlan í Viðey verður tendruð fimmtudaginn 18. febrúar kl. 19 í tilefni af afmælisdegi Yoko Ono og mun loga á henni þar til kl. 9 þann 19. febrúar.
NánarHætt við ráðgátu á Safnanótt
Vegna umfjöllunar um fyrirhugaðan ratleik um borð í varðskipinu Óðni vill starfsfólk Borgarsögusafns Reykjavíkur koma eftirfarandi á framfæri:
NánarSafnanótt á Borgarsögusafni 5. feb kl. 19-24
Borgarsögusafn verður með skemmtilega dagskrá á safnanótt á öllum sýningarstöðum nema í Viðey. Hér fyrir neðan má sjá nákvæmlega hvað er í boði á hverjum stað þessa nótt.
NánarHúsverndarstofa opnar á ný eftir vetrarfrí
Húsverndarstofan hefur opnað aftur eftir vetrarfrí. Hægt er að nálgast ráðgjöf um endurgerð og viðgerðir eldri húsa alla miðvikudaga á milli kl. 15 og 17 og er svarað á sama tíma í síma 411 6333. Stofan er til húsa í safnhúsi sem kallast Kjöthús.
NánarSamstarf HÍ og Borgarsögusafns
Hugvísindasvið Háskóla Íslands og Borgarsögusafn Reykjavíkur efna til samstarfs á sviði menningarmiðlunar og fimmtudaginn 14. janúar sl. var undirritaður samstarfssamningur þar að lútandi.
NánarMinningarsjóður Magnúsar Ólafssonar veitir verðlaun í ljósmyndarýni
Hin pólskættaða Agnieszka Sosnowska var hlutskörpust þátttakenda í ljósmyndarýni sem Borgarsögusafn Reykjavíkur stóð fyrir 15.-16. janúar. Í verðlaun var styrkur úr Minningarsjóði Magnúsar Ólafssonar ljósmyndara (1862-1937) að upphæð 400.000 kr.
NánarFyrirmyndarstofnun ársins 2015
Borgarsögusafn Reykjavíkur hlaut á dögunum viðurkenningu fyrir að vera ein af fyrirmyndarstofnunum ársins 2015. Athöfnin fór fram í Silfurbergi í Hörpu og tók safnstjórinn Guðbrandur Benediktsson við blómvendi og viðurkenningarskjali af því tilefni.
Nánar