Varðskipið Óðinn: Hlutverkaleikur með búningum

Förum í varðskipið Óðinn og setjum okkur í spor áhafnarinnar.

Fræðsla fyrir 5. - 7. bekk
Varðskipið Óðinn

Hámarksfjöldi: 18

Bekkur: 5.-7.

Tími: 40-45 mín.

Nemendur fá einstakt tækifæri að klæðast búningum og kynnast ólíkum störfum um borð. Lærum jafnframt um sögu varðskipsins Óðins á göngu okkar um skipið. Áhersla lögð á umræður og þátttöku. Athugið að vegna öryggisráðstafana er hámarksfjöldi um borð 18 (þ.m.t. börn, kennarar og starfsfólk). Vinsamlegast athugið að vegna aðstæðna í samfélaginu verður varðskipið Óðinn lokað um óákveðinn tíma.