Sýningar
Á annarri hæð safnsins er grunnsýningin Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár. Sýningin var opnuð 9. júní 2018. Á þeirri sömu hæð er lítill salur sem nefnist Hornsílið. Þar eru settar upp tímabundnar sýningar. Sá salur er líka leigður út fyrir fundi.
Á jarðhæð er stór salur sem nefnist Vélasalurinn þar eru settar upp tímabundnar sýningar.
Fiskur & fólk - sjósókn í 150 ár
Glæný grunnsýning. Opið alla daga 10:00-17:00. Verið velkomin!
NánarMelckmeyt 1659 - fornleifarannsókn neðansjávar
Melckmeyt (Mjaltastúlkan) var hollenskt kaupskip sem fórst við Flatey á 17. öld.
NánarFrá örbirgð til allsnægta
Fastasýning Sjóminjasafnins heitir; Frá örbirgð til allsnægta og lýsir þeim miklu breytingum sem áttu sér stað um og eftir aldamótin 1900 í fiskveiðum Íslendinga og vinnslu aflans
NánarÞorskastríðin
Sýningin Þorskastríðin, fjallar um pólitískar deilur milli Íslands og Bretlands um fiskveiðiréttindi á Íslandsmiðum á árunum 1958-1976.
NánarSvifið seglum þöndum
Lifandi og skemmtileg yfirlitssýning um sögu Sjómannadagsráðs þar sem m.a. er fjallað um uppruna Sjómannadagsins, Happadætti DAS og uppbyggingu Hrafnistuheimilanna.
NánarReykvíkingar – myndbrot úr safni verkamanns
Karl fæddist í Traðarkoti við Hverfisgötu 10. júní 1895 og ólst upp í gamla Austurbænum. Til skamms tíma, um 1914-1916, starfaði hann og nam ljósmyndun á ljósmyndastofu Carls Ólafssonar við Laugaveg.
NánarÞrælkun, þroski, þrá?
Sýningin Þrælkun, þroski, þrá? fjallar um börn við vinnu á sjó og í landi.
NánarLífæð lands og borgar
Sýningin fjallar um sögu kaupsiglinga og hafnargerðar í Reykjavík. Sýningin er m.a. sett upp í fyrrum vélarsal Bæjarútgerðar Reykjavíkur, en salurinn býður upp á nýstárlega möguleika í sýningahaldi og hefur fengið nafnið Bryggjusalurinn.
NánarHafið í fókus
Fókus, félag áhugaljósmyndara, stendur reglulega fyrir sýningum á ljósmyndum félagsmanna sinna.
NánarÚtskurður Lúkasar Kárasonar
Lúkas nýtir rekavið af Ströndum, sínum æskuslóðum, í allan sinn útskurð. Í viðnum leynast oft skemmtilegar og skrítnar verur sem honum tekst að laða fram af einstakri lagni.
NánarLjósmyndakeppni sjómanna
Sjómannablaðið Víkingur stendur árlega fyrir ljósmyndakeppni sjómanna. Skilyrði fyrir þátttöku er að myndirnar séu teknar af sjómönnum. Myndir má taka hvort heldur sem er um borð eða í landi í landlegum.
NánarFrá miðum til markaða - ljósmyndir Kristins Benediktssonar
Myndirnar sýna á skemmtilegan og lifandi hátt ferlið frá því að fiskur er veiddur þangað til hann er komin á markaði erlendis.
NánarTeikningar Jóns Baldurs Hlíðberg
Sýningin samanstendur af teikningum Jóns Baldurs af fiskum, hryggleysingjum og kynjaskeppnum ásamt stuttu kynningamyndbandi um störf hans sem teiknara.
NánarBjörtum öngli beitirðu – Jón Sigurðsson og Litla fiskibókin
Sýningin er byggð á ritinu Lítil Fiskibók sem Jón Sigurðsson gaf út árið 1859. Þar birtist ný hlið á störfum Jóns sem hingað til hefur ekki verið þekktur af áhuga á fiskveiðum.
NánarSögueyjan kallar
Sýningin samanstendur af ljósmyndum og frásögnum af siglingu sem farin var frá Finnlandi til Íslands árið 1994.
NánarÁ skjön - myndlistarsýning
Samsýning Margrétar Jónsdóttur, Ragnheiðar Guðjónsdóttur og Steinunnar Guðmundsdóttur.
NánarSíldarævintýri
Á sýningunni er dregin upp mynd af ævintýraheimi síldaráranna með ljósmyndum Hauks Helgasonar (teknum 1953-57), kvikmynd Sigurðar Helgasonar (tekin1941) og munum tengdum síldveiðum.
NánarJapan eftir flóðið
Sýningin samanstendur af 69 ljósmyndum sem Egill Þórðarson og Yoko Arai Þórðarson tóku í Miyako 15. júní og Kesennuma 27. júní 2011.
NánarÓlafur Thorlacius- Vatnslitamyndir
Ólafur starfaði um árabil hjá Landhelgisgæslu Íslands sem kortagerðamaður. Hann hefur nú látið af störfum og málar sér til skemmtunnar. Myndefni sækir hann í náttúru Íslands, hafið og sjávarþorpin.
NánarÚtskurður Ásmundar Guðmundssonar
Ásmundur Guðmundsson fæddist árið 1929 og starfaði sem skipstjóri til 1975. Hann fékk þá alvarlegt heilablóðfall, aðeins 46 ára að aldri.
NánarÍslendingurinn og hafið.
Glæsileg málverkasýning frístundamálara. Um 30 málarar sýna verk sín og öll taka þau mið af heiti sýningarinnar: Íslendingurinn og hafið.
NánarHorfnir sjávarhættir – Myndir Bjarna Jónssonar
Bjarni Jónsson listmálari fæddist 15. september 1934. Hann lést 8. janúar 2008. Bjarni var kennari en málaði einnig mikið og teiknaði. Hann hélt fjölda einkasýninga og tók þátt í samsýningum hér heima og erlendis.
NánarSjósókn í Norðurhöfum
Farandsýning sem veitir einstaka innsýn í líf sjómanna á fiskiskipum í Norðurhöfum og undirstrikar um leið mikilvægi fiskveiða fyrir eyjarnar á þessum slóðum.
Nánar